Opinber umboðsaðili á Íslandi
Hitasjónaukar lesa hita, ekki birtu. Þess vegna stöðva hvorki myrkur, þoka né gróður þá. Guide framleiðir sína eigin skynjara og gefur tíu ára ábyrgð á þeim.
Til áramóta bjóðum við öll tæki á kynningarverði. Það er 10% undir almennu verði.
Tilboðið gildir þegar keypt er beint af okkur til og með 31. desember 2026. Þú getur prófað tækið áður en þú kaupir.
Tækið þarf ekkert ljós. Dýrið sést jafn vel á miðnætti og um hádegi og ekkert ljós fælir það frá.
Hitageislun kemst í gegnum móðu og rigningu sem gerir venjulegan sjónauka gagnslausan. Þú sérð yfir svæðið þegar augað sér ekkert.
Dýr liggja í lyngi og lautum. Á hitamynd stendur hlýr skrokkur út úr köldu landi og þú sérð hann strax.
Vörulínan
Guide smíðar skynjarann, ljósfræðina og hugbúnaðinn sjálft. Flest tæki á lista Guide Outdoor Ísland eru með 640×512 eða 1280×1024 skynjara og innbyggðum fjarlægðarmæli. Smelltu á tæki til að sjá nánari upplýsingar.
Til leitar og athugunar. Léttust í hendi og mest notuð.
Bæði augu opin. Þreytir ekki á langri vakt.
Framan á riffilsjónaukann sem þú átt. Núllið helst.
Heilsteypt tæki með innbyggðum miðunarbúnaði.
Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti. Kynningarverð gildir í beinni sölu hjá Guide Outdoor Ísland til og með 31. desember 2026. Frá 1. janúar gildir almennt verð. Verð geta breyst með gengi evru. Hafðu samband fyrir staðfest verð og afhendingartíma.
Ábyrgð á tæki
3 ár
Ábyrgð frá framleiðanda, Guide, sem gildir á öllu tækinu í þrjú ár frá kaupdegi.
Ábyrgð á skynjara
10 ár
Skynjarinn er dýrasti hlutinn og sá sem endist lengst. Guide framleiðir hann sjálft og ábyrgist hann í áratug.
Þjónusta
Ísland
Við tökum við tækjum í ábyrgð hér heima og sjáum um samskiptin við framleiðandann.
Hafðu samband